Eldgosið viðamest verkefna björgunarsveita í ár

Á vaktinni við Hrossaborg á Mývatnsöræfum í haust, en leiðinni …
Á vaktinni við Hrossaborg á Mývatnsöræfum í haust, en leiðinni þaðan og inn í Herðubreiðarlindir, Öskju og Holuhraun var lokað. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Björgunarsveitarmenn hafa frá í sumar lagt fram allt að 10 þúsund vinnustundir vegna ýmissa verkefna sem tengjast eldgosinu í Holuhrauni.

„Þetta er eitt viðamesta verkefni okkar á árinu,“ segir Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Liðsmenn björgunarsveita segir hann bæði hafa sinnt hefðbundinni aðstoð og fleiri verkefnum, en tímafrekust hafi verið mönnun lokunarpósta á vegum að umbrotasvæðinu. Þar hafi verið varðstaða vikum saman og jafnan tveir menn á vakt.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert