Veginum um Hvalfjörð lokað

Færðin hefur ekki verið upp á það besta að undanförnu.
Færðin hefur ekki verið upp á það besta að undanförnu. mbl.is/Kristinn

Búið er að loka veginum um Hvalfjörð vegna veðurs og ófærðar. Mjög hvasst er í firðinum og fljúgandi hálka. Vegfarendur eru hvattir til að reyna ekki að fara þessa leið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert