Engin smálán lengur í Króatíu

mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Bland.is og Netgíró eru í eigu sama aðila og stofnaði bæði Hraðpeninga og sambærilegt smálánafyrirtæki að nafni Minikredit sem starfaði í Króatíu þar til lög voru sett á starfsemina þar í landi árið 2012. Kýpverska huldufyrirtækið Jumdon Finance á þrjú smálánafyrirtæki hér á landi en það var einnig á bakvið íslensku smálánastarfsemina í Króatíu.

Fyrir örfáum árum var vörumerkið Minikredit áberandi á markaði fyrir smálán í Króatíu. Það starfaði á árunum 2010-2012 en smálánabransinn varð skammvinnur í Króatíu því árið 2012 breyttu yfirvöld lögum um neytendalán þannig að ekki var lengur hagkvæmt að bjóða smálán til landsmanna. Ástæða þess að saga Minikredit á erindi á síðu íslensks fréttamiðls er sú að félagið á bakvið það var í íslenskri eigu. Minikredit notaðist við nákvæmlega sams konar vörumerki og hið íslenska Hraðpeningar enda í eigu sömu aðila.

Vörumerkið Minikredit var í eigu fyrirtækis að nafni Odmah (orðið þýðir „strax“) sem var og er enn skráð í eigu Skorra Rafns Rafnssonar, samkvæmt króatískri fyrirtækjaskráningu. Hann er nú stjórnarformaður sölutorgsins Bland.is og forstjóri fyrirtækis sem nefnist Móberg og er eigandi að Bland.is, Netgíró, Skífunni, Sport.is, Hún.is, Gamestöðinni, Flickmylife.com, 433.is og netfyrirtækinu Wedo – sem sér til dæmis um að halda úti vefsíðum hinna fyrirtækjanna. Wedo er með höfuðstöðvar í Reykjavík en starfsstöð í Zagreb í Króatíu.

Odmah var fulltrúi Jumdon Finance

Þegar nánar er rýnt í gögn frá króatísk-íslenska smálánafyrirtækinu Minikredit má sjá að í lok ágúst 2011 sendi félagið frá sér fréttatilkynningu þar sem eignarhald fyrirtækisins er skýrt nánar.

Í henni kemur fram að eigandi Minikredit, þ.e. fyrirtækið Odmah, sé „fulltrúi fyrirtækisins Jumdon Finance Corp. frá Kýpur“.

Nafn Jumdon Finance hefur komið upp í viðskiptafréttum hérlendis enda er það nú skráð sem eigandi að Hraðpeningum, 1909 og Múla, þeirra þriggja smálánafyrirtækja sem starfa undir hatti félags sem heitir Neytendalán. Forsvarsmenn fyrirtækjanna hafa fram til þessa ekki svarað neinu um eignarhald kýpverska fyrirtækisins og örðugt reynist að leita upplýsinga hjá fyrirtækjaskrá á Kýpur.

Fyrir liggur að Hraðpeningar voru stofnaðir árið 2009 af Skorra Rafni Rafnssyni og fleirum. Samkvæmt upplýsingum frá Skorra Rafni seldu þeir Hraðpeninga í janúar árið 2011 og í samtali við blaðamann við vinnslu þessarar greinar sagðist Skorri Rafn ekki hafa nein tengsl við Jumdon Finance, núverandi skráðan eiganda Hraðpeninga, Múla og 1909.

Miðað við fréttatilkynninguna sem send var í ágúst 2011, þegar Skorri Rafn var enn stjórnandi Odmah og Minikredit, þá eru tengslin við Jumdon Finance þó augljós. Odmah, fyrirtæki Skorra Rafns í Króatíu, var þá (eftir að hann seldi hlut sinn í hinu íslenska fyrirtæki Hraðpeningar) fulltrúi (e. representative) Jumdon Finance.

Íslenskt eignarhald vakti athygli króatískra fjölmiðla

Talsvert var skrifað um hin nýtilkomnu smálán í króatískum fjölmiðlum árin 2010 og 2011, enda fyrirbærið óþekkt þar í landi líkt og hér. Fólk hafði ekki áður getað fengið lán með himinháum vöxtum með því einu að senda sms.

Rætt var við hinn íslenska fulltrúa Odmah og Jumdon Finance sumarið 2011. „Ég er mjög bjartsýnn á króatíska markaðinn og sé að hér er mikil eftirspurn eftir smálánum,“ var haft eftir Skorra Rafni í króatíska viðskiptablaðinu Poslovni Dnevnik þann 28. júní 2011.

Í tilkynningunni sem Odmah sendi frá sér í ágúst sama ár og vísað er í að framan er hins vegar gerð grein fyrir því að Odmah er í raun fulltrúi Jumdon Finance, hins kýpverska eiganda þriggja af fimm smálánafyrirtækjum hér á landi. Fréttatilkynningin er aðgengileg á Facebook-síðu Minikredit. Minikredit er enn með virka síðu á Facebook en hefur ekki sett inn færslu frá því í lok nóvember 2012. Það er ekki tilviljun því í desember 2012 gekk í gildi ný og endurbætt neytendalöggjöf þar sem sérstaklega var kveðið á um harðari skilyrði fyrir fyrirtæki sem veita neytendalán.

Gögn frá króatískri fyrirtækjaskrá sýndu, að því er fram kom í skrifum blaðamanna Poslovni Dnevnik, að ekki var mikill hagnaður og ekki sérlega mikil velta hjá íslensk-króatíska félaginu Odmah sem starfaði undir nafninu Minikredit. Það er þó ekki talið til marks um að smálánabransinn þar hafi ekki verið ábatasamur, heldur var ástæða þess sú að lánaveltan hjá Odmah fór í raun í gegnum hið kýpverska Jumdon Finance og þar kom þá hagnaður eða tap fyrirtækisins fram. Engar upplýsingar fengust þó um það huldufyrirtæki, ekki frekar en fengist hafa upplýsingar um hið sama hér á landi.

Smálánafyrirtækin sem starfa hér á landi eru fimm. Auk þeirra sem talin hafa verið upp að ofan eru fyrirtækin Kredia og Smálán starfandi en þau eru einnig sögð í erlendri eigu einnig og því hafa takmarkaðar upplýsingar verið veittar um afkomu þeirra.

Smálánastarfsemin í Króatíu lagðist af þegar löggjöfin utan um neytendalán var hert. Löggjöf um neytendalán var hert hér á landi 2013 en smálánafyrirtæki lifa þó enn – þótt lítið sé í raun vitað um hversu góðu lífi þau lifa.

Leiðrétting: Í greininni sem upphaflega birtist í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins sem kom út 3.janúar var sagt að Fjölvar Darri Rafnsson hefði stofnað Hraðpeninga ásamt Skorra Rafni. Þetta er rangt, Fjölvar Darri var ekki á meðal stofnenda félagsins. Beðist er velvirðingar á mistökunum.

Frétt mbl.is: Tók þrettán smálán á fimm dögum

Skorri Rafn Rafnsson.
Skorri Rafn Rafnsson.
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert