Dregur uppsögnina til baka

Fjölmargir læknar sem sögðu upp vinnu sinni þegar kjaradeila lækna stóð sem hæst íhuga nú framtíð sína og hvort þeir muni draga uppsögn sína til baka. Björn Logi Þórarinsson, sérfræðingur í lyflækningum og taugalækningum á Landspítalanum í Fossvogi, hefur þó ákveðið að draga uppsögn sína tilbaka.

Björn Logi segir að þótt töluvert sé í land með að læknar nái sambærilegum kjörum og starfsbræður þeirra á Norðurlöndunum sé samningurinn, sem læknar hafa samþykkt og felur í sér 20% launahækkun hið minnsta, skref í rétta átt og vel ásættanlegur.

Þrátt fyrir það segir hann deginum ljósara að ráðast þurfi í fjárfestingu til að skapa hér alvöruheilbrigðiskerfi. Sem dæmi nefnir hann að sá milljarður sem verið sé að veita aukalega til Landspítalans í ár myndi rétt duga fyrir því að taugadeild Landspítalans í Fossvogi, sem hann starfar á, gæti nálgast það þjónustustig sem þekkist á Vesturlöndum.

Þá segir Björn Logi afar jákvætt að finna fyrir því að íslenskir sérfræðingar sem starfi erlendis séu orðnir jákvæðari fyrir því að starfa hér á landi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert