Andlát: Egill Ólafsson blaðamaður

Egill Ólafsson blaðamaður.
Egill Ólafsson blaðamaður. mbl.is/Golli

Egill Ólafsson, blaðamaður á Morgunblaðinu og mbl.is, lést miðvikudaginn 28. janúar síðastliðinn, 52 ára að aldri.

Egill fæddist 16. nóvember 1962, sonur hjónanna Ólafar Guðmundsdóttur og Ólafs Egilssonar. Hann ólst upp í Borgarnesi og á Mýrum. Gekk í Fjölbrautaskólann í Breiðholti og lauk BA-prófi í sagnfræði frá HÍ árið 1989. Starfaði að námi loknu sem blaðamaður á Tímanum. Egill hóf störf á Morgunblaðinu árið 1993 og starfaði þar til dánardags, aðallega á mbl.is seinni árin. Hann gegndi um hríð starfi fréttastjóra Morgunblaðsins. Í ársbyrjun árið 2014 fór hann í tveggja ára leyfi til að skrifa sögu Borgarness og var kominn vel á veg með það verk er hann féll frá.

Egill var á námsárum sínum formaður nemendafélags FB, formaður félags sagnfræðinema við HÍ, sat í stjórn Sagnfræðingafélags Íslands um tíma og sat í stjórn Blaðamannafélags Íslands. Hann var afkastamikill blaðamaður og vel liðinn samstarfsmaður, jafnt á Morgunblaðinu sem í Borgarnesi þar sem hann sinnti ritun bæjarsögunnar í Safnahúsinu við Bjarnarbraut. Tók hann m.a. fjölda viðtala við bæjarbúa og kynnti sögu bæjarins með ýmsum hætti á meðan hann vann að verkinu.

Egill var kvæntur Unni Lárusdóttur, upplýsingafræðingi hjá innanríkisráðuneytinu, og eignuðust þau tvö börn; Ólaf Lárus sem starfar í veitingarekstri og sinnir myndlist og Urði menntaskólanema. Egill fór m.a. með dóttur sinni Urði í sjö vikna ferð um Indókína og fleiri lönd síðastliðið sumar, en Urður skrifaði grein um ferð þeirra feðgina í Morgunblaðið að ferð lokinni sem vakti verðskuldaða athygli.

Samstarfsfólk Egils á Morgunblaðinu sendir fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Egill var skarpur og öflugur blaðamaður en umfram allt góður félagi sem verður sárt saknað.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert