Rafræn skilríki í íbúakosningu

Reykjavík séð frá Reykjavíkurhöfn.
Reykjavík séð frá Reykjavíkurhöfn. mbl.is/Styrmir Kári

Rafrænar íbúakosningar undir merkinu Betri hverfi 2015 verða haldnar í Reykjavík dagana 17. – 24. febrúar nk. Þetta er í fjórða sinn sem slíkar kosningar eru haldnar um verkefni í hverfum borgarinnar en hugmyndirnar að verkefnunum eiga íbúarnir sjálfir.

Fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg, að allir sem eigi lögheimili í Reykjavík og séu orðnir 16 ára geti tekið þátt í kosningunum. Til að komast inn á kosningavefinn verði íbúar að eiga Íslykil eða rafræn skilríki til auðkenningar og nauðsynlegt sé að hafa slík auðkenni tiltæk áður en haldið sé á „kjörstað“ í tölvunni sinni eða spjaldtölvu, eins og það er orðað.

Þá kemur fram, að kosið sé á milli allt að 20 hugmynda í tíu hverfum borgarinnar.

„Hugmyndum að verkefnum í hverfum borgarinnar var safnað í október á síðasta ári og bárust 690 hugmyndir frá íbúum inn á vefinn Betri hverfi 2015 sem var metfjöldi í hugmyndasöfnun fyrir hverfin.

Alls hafa verið verðmerktar hugmyndir að verkefnum fyrir rúmlega 820 milljónir króna en fjárheimild hverfanna er um 300 milljónir á þessu ári.

Í kosningunum forgangsraða íbúar verkefnum í sínum hverfum. Niðurstöður kosninganna eru bindandi fyrir Reykjavíkurborg sem skuldbindur sig til að framkvæma þau verkefni sem kosin eru.

Þegar hafa verið framkvæmd verkefni fyrir 900 milljónir króna sem kosin hafa verið af íbúum í Reykjavík sl. þrjú ár. Með kosningunum núna hefur Reykjavíkurborg alls lagt 1.200 milljónir króna í að framkvæma hugmyndir íbúa í hverfum borgarinnar,“ segir í tilkynningunni.

Hægt er að kynna sér verkefnin sem kosið verður um í Betri hverfi 2015 hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert