Tíðindalaus fundur SGS og SA

Ekki dró til tíðinda á fyrsta sáttafundi samninganefnda Starfsgreinasambandsins (SGS) og Samtaka atvinnulífsins hjá Ríkissáttasemjara á föstudag. Ákveðið hefur verið að boða til næsta fundar á fimmtudaginn.

Félög innan Starfsgreinasambandsins hafa að undanförnu búið sig undir hugsanleg verkfallsátök á vinnumarkaði. Um leið og SGS kynnti Samtökum atvinnulífsins kröfugerð sína í lok janúar var það ljóst að mati sambandsins að á brattann yrði að sækja í komandi kjaraviðræðum. Urðu viðbrögð SA þess valdandi að deilunni var strax vísað til sáttasemjara, að því er segir á vef SGS.

Þar segir jafnframt að mikill hugur sé í verkafólki um allt land að sækja fram og berjast fyrir hækkun krónutölu í grunnlaun.

Samninganefnd SGS kom saman til fundar eftir fundinn hjá ríkissáttasemjara á föstudag til að meta stöðuna í kjaraviðræðum. Í samninganefnd SGS sitja formenn allra aðildarfélaga sem veitt hafa sambandinu umboð í komandi kjarasamningum.

Var það skýr niðurstaða samninganefndar SGS að hugsa kjarabaráttuna, sem nú stendur yfir, til þriggja ára eins og kröfugerð SGS gerir ráð fyrir, en í henni er skýr krafa um 300 þúsund króna lágmarkslaun innan þriggja ára.

„Önnur landssambönd og stéttarfélög leggja til skammtímasamninga til eins árs en ljóst er að þau viðmið sem SGS  setti fram í sinni kröfugerð er gegnumgangandi í kröfum annarra félaga þó mismunandi áherslur séu varðandi útfærslur og tímaramma,“ segir á vef SGS.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert