Fyrsta skóflustunga að Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur

Teikn­ing af húsi Stofn­un­ar Vig­dís­ar Finnbogadótt­ur í er­lend­um tungu­mál­um.
Teikn­ing af húsi Stofn­un­ar Vig­dís­ar Finnbogadótt­ur í er­lend­um tungu­mál­um. Teikning/Arkitektur.is

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, taka fyrstu skóflustungu að nýbyggingu fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands næstkomandi sunnudag, á alþjóðadegi kvenna, klukkan 15.

Byggingin mun rísa á horni Suðurgötu og Brynjólfsgötu, næst gömlu Loftskeytastöðinni. Framkvæmdir hefjast alveg á næstunni og á húsið að verða tilbúið til notkunar í október 2016, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Í húsinu verður fjölbreytt starfsemi sem öll miðar að því að auka þekkingu á erlendum tungumálum og menningu og mikilvægi þeirra og miðla henni sem víðast. Þar verður til húsa Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar sem mun starfa undir merkjum UNESCO, Menningar- og vísindastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Hún er fyrsta  tungumálamiðstöð sinnar tegundar í heiminum sem hlýtur slíkan sess. Í byggingunni verður einnig aðstaða til kennslu og rannsókna í þeim erlendu tungumálum sem kennd eru við Háskóla Íslands og þekkingarmiðstöð þar sem leikir og lærðir geta fræðst um erlend tungumál og menningu á lifandi og skapandi hátt, að því er segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert