Ekki varað við ferðalögum vegna mislinga

AFP

Sóttvarnalæknir segir að það sé í góðu lagi að bólusetja börn fyrr en við 18 mánaða aldur ef fólk er að ferðast til svæða þar sem mislingar hafa verið að greinast. Ef barn sé hins vegar bólusett á fyrsta aldursári þá þurfi að endurbólusetja við 18 mánaða aldur.

Þá segir, að ekki sé ástæða til að bólusetja börn fyrr sem séu að fara til svæða þar sem mislingar hafa ekki verið að greinast.

Engin áform eru uppi á þessari stundu um að vara við ferðalögum til svæða þar sem mislingar hafa verið að greinast.

Á vef landlæknisembættisins kemur fram, að mikil umræða hafi átt sér stað undanfarið vegna mislinga sem greinst hafi erlendis og hvort ástæða sé til að hefja bólusetningu gegn þeim fyrr en mælt er með hér á landi en fyrsta bólusetning er við 18 mánaða aldur.

Bent er á, að almennar bólusetningar gegn mislingum hafi hafist hér árið 1976 við tveggja ára aldur en síðasti stóri faraldur mislinga gekk hér á árunum 1976 – 1978. Því megi líta svo á að þorri Íslendinga sem fæddur sé fyrir 1970 hafi fengið mislinga og þurfi því ekki bólusetningu jafnvel þó þeir séu að ferðast til svæða þar sem mislingar hafa verið að greinast.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert