99,4% samþykktu leiðréttinguna

mbl.is/Kristinn

Þriggja mánaða frestur til þess að samþykkja ráðstöfun leiðréttingar verðtryggðra húsnæðislána rann út á miðnætti hjá þeim umsækjendum um leiðréttingu sem gátu samþykkt hana frá 23. desember sl. Af þessum hópi samþykktu 99,4% ráðstöfun leiðréttingarinnar. 553 einstaklingar samþykktu ekki ráðstöfunina. 

Þetta kemur fram á vef fjármálaráðuneytisins.

Fram kemur, að frá því að útreikningar um leiðréttingu verðtryggðra húsnæðislána hafi verið birtir hafa starfsmenn ríkisskattstjóra lagt áherslu á að afgreiða allar athugsemdir og fyrirspurnir fólks í kjölfar birtingar. Þessi vinna hefur gengið vel og hafa þúsundir erinda verið afgreidd. 

Um 3,9% umsækjenda eiga eftir að fá sínar niðurstöður birtar. Þessar umsóknir tengjast m.a. dánarbúum, uppfylla ekki skilyrði til leiðréttingar eða vandkvæði eru við að tengja heimilissögu eða lán við umsækjendur.  Unnið er að því hjá ríkisskattstjóra að leysa úr þessum umsóknum og er stefnt að því að því verði lokið nú á vormánuðum.

Auk leiðréttingar verðtryggðra húsnæðislána gefst fólki kostur á því að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði inn á húsnæðislán en ekki þarf að greiða skatt af upphæðunum. Í gær höfðu 33.300 einstaklingar sótt um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði með þessum hætti en áfram verður tekið á móti umsóknum um þetta úrræði á vef leiðréttingarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert