Í heljargreipum óvissunnar

Fiskistofa hefur frá byrjun árs 2006 haft aðsetur að Dalshrauni …
Fiskistofa hefur frá byrjun árs 2006 haft aðsetur að Dalshrauni í Hafnarfirði. mbl.is/Árni Sæberg

Eyþór Björnsson, fiskistofustjóri, segir að það hafi í sjálfu sér ekki komið honum og starfsmönnum Fiskistofu á óvart að Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra, sagði hér í Morgunblaðinu í gær að Fiskistofa flytti ekki frá Hafnarfirði til Akureyrar á þessu ári.

„Það sem kom mér hins vegar gjörsamlega í opna skjöldu og verulega á óvart voru þau orð ráðherrans, að hann legði ekkert höfuðkapp á að koma frumvarpinu um flutning á Fiskistofu í gegn á yfirstandandi þingi,“ sagði Eyþór í samtali við Morgunblaðið í gær.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í  dag segir Eyþór að sér lítist illa á það að ekki sé stefnt að því að koma frumvarpinu í gegn á þessu þingi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert