Alls 217 fasteignir til sölu

Íbúðalánasjóður á 92 fasteignir á Reyðarfirði.
Íbúðalánasjóður á 92 fasteignir á Reyðarfirði. mbl.is/Golli

Alls 217 fasteignir á Austurlandi, sem eru í eigu Íbúðalánasjóðs, eru til sölu, en í eignasafni sjóðsins eru alls 238 eignir eystra.

Alls 103 eignir eru á skrá hjá fasteignasölum á Austurlandi. Til viðbótar eru í sérstöku söluferli 114 eignir; það er að eignir eru settar saman í pakka og verða seldar þannig. Með því er höfðað til fjárfesta sem ef til vill vilja kaupa nokkurn fjölga eigna, svo sem til útleigu.

Eignir Íbúðalánasjóðs á Austurlandi í útleigu til lengri sem skemmri tíma eru 121. Mál viðvíkjandi 13 eignum eru í frekari úrvinnslu og skráningu. Ákvörðun um ráðstöfun þeirra verður tekin þegar þegar greiningarvinnu og öðru lýkur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert