Landsbankinn veitir frí og lokar útibúum

Landsbankinn hefur ákveðið að veita starfsfólki sínu frí eftir hádegi …
Landsbankinn hefur ákveðið að veita starfsfólki sínu frí eftir hádegi þann 19. júní. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Landsbankinn hefur ákveðið að veita starfsfólki sínu frí eftir hádegi þann 19. júní til að taka þátt í skipulögðum hátíðahöldum þegar þess verður minnst að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningarétt. Öll útibú bankans verða lokuð og önnur starfsemi í lágmarki. Með þessu vill bankinn sýna í verki stuðning sinn við jafnrétti.

Í tilkyningu segir að Landsbankinn hafi skýra jafnréttistefnu og frá árinu 2010 hafi bankinn haft þá stefnu að hlutur hvors kyns í forystusveit bankans sé ekki undir 40%. Í framkvæmdastjórn bankans sitja nú 4 konur og 4 karlar og bankaráð Landsbankans uppfyllir kröfur um jafnan hlut kynja í stjórnum. Í Landsbankanum eru nú 61% starfsmanna konur og 39% karlar.

„Landsbankinn leitast við að skapa framúrskarandi vinnustað þar sem allir eiga sömu möguleika til starfa og starfsþróunar og þar sem konur og karlar eigi jafna möguleika til stjórnarsetu. Bankinn forðast að skilgreina störf sem karla- eða kvennastörf.

Landsbankinn greiðir sömu laun fyrir sambærileg störf og nýverið fékk bankinn gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC.  Landsbankinn er fyrstur banka á Íslandi til að hljóta gullmerkið og er jafnframt stærsta fyrirtækið sem hefur undirgengist og staðist þá úttekt,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert