Nafn mannsins sem lést

Maðurinn hét Hallgrímur Magnússon.
Maðurinn hét Hallgrímur Magnússon. Ljósmynd/Lögreglan á Suðurlandi

Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Biskupstungnabraut í gær hét Hallgrímur Þ. Magnússon. Hann var fæddur 29. september 1949, búsettur að Bjarkarbraut 18 í Reykholti í Biskupstungum.  

Hallgrímur lætur eftir sig eiginkonu, fjórar uppkomnar dætur og níu barnabörn.  Hann var læknir og sinnti störfum sínum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, bæði í Hveragerði og á Selfossi. 

Frétt mbl.is: Banaslys á Biskupstungnabraut

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert