Tóku fyrstu skóflustunguna

Í dag var fyrsta skóflustungan að einu stærsta byggingarverkefni miðborgarinnar fram til þessa tekin.

 Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, Helgi S. Gunnarsson forstjóri Reginn, Gísli Steinar Gíslason  og Guðni Rafn Eiríksson fyrir hönd  Landstólpa þróunarfélags, tóku fyrstu skóflustunguna vegna upphafs framkvæmda við reit eitt og tvö við Austurbakka í Reykjavík.

Á reitunum eiga að rísa íbúðir og fjölbreytt húsnæði fyrir ýmsa atvinnustarfsemi, s.s. verslanir, veitingahús, skrifstofur og þjónustu. Auk þess verður byggður bílakjallari á reitnum sem verður samtengdur öðrum bílakjöllurum á lóðinni, allt að Hörpu.  Áætlað að sameiginlegur kjallari rúmi um 1.000 bíla.

 Framkvæmdaraðili er Landstólpar þróunarfélag og er áætlað að framkvæmdum á reitnum ljúki haustið 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert