Forða starfsmönnum frá frekari skaða

Fiskistofa hefur frá byrjun árs 2006 haft aðsetur að Dalshrauni …
Fiskistofa hefur frá byrjun árs 2006 haft aðsetur að Dalshrauni í Hafnarfirði. mbl.is/Árni Sæberg

Starfsfólk Fiskistofu skorar á Sigurð Inga Jóhannsson sjávarútvegsráðherra að draga ákvörðun sína um að flytja höfuðstöðvar Fiskistofu til Akureyrar til baka. 

Í áskorun sem starfsmenn samþykktu á almennum fundi í dag segir: 

  • Starfsmönnum Fiskistofu verði þegar í stað gerð formlega grein fyrir stöðu málsins og hvers vænta megi um framhaldið.
  • Vegna langvarandi óvissu hefur fjöldi starfsmanna nú þegar hrakist úr störfum sínum og ekki hefur verið hægt að ráða í þær stöður.
  • Komið er að þolmörkum þess að stofnunin geti sinnt lögbundnum verkefnum sínum vegna þess ástands sem hefur verið viðvarandi undanfarin misseri.
  • Nú þegar hefur orðið mikið þekkingarrof hjá stofnuninni og fyrirsjáanlegt er að það muni aukast ef fram fer sem horfir.

„Starfsmenn Fiskistofu skora á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að draga ákvörðun um flutning Fiskistofu þegar til baka og forða þannig stofnuninni og starfsmönnum hennar frá enn frekari skaða en orðinn er,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert