14.700 vilja makrílkvóta í þjóðaratkvæði

Þónokkur fjöldi vill að forseti vísi lögum um fiskveiðiauðlindir í …
Þónokkur fjöldi vill að forseti vísi lögum um fiskveiðiauðlindir í þjóðaratkvæðagreiðslu. Skjáskot af vefnum Þjóðareign.is

Um 14.500 manns hafa á rúmum sólarhring skrifað undir áskorun a vefsíðunni Þjóðareign.is, þar sem segir:

„Við undirrituð skorum á forseta Íslands að vísa í þjóðaratkvæðagreiðslu hverjum þeim lögum sem Alþingi samþykkir þar sem fiskveiðiauðlindum er ráðstafað til lengri tíma en eins árs á meðan ekkert ákvæði um þjóðareign á auðlindum hefur verið sett í stjórnarskrá og þjóðinni ekki verið tryggt fullt gjald fyrir afnot þeirra.“

Bolli Héðinsson, einn aðstandenda undirskriftasöfnunarinnar, segir í samtali við mbl.is að frekar en að úthluta makrílkvóta til sex ára eins og rætt sé um standi ríkisstjórninni nær að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrána sem tryggi eign þjóðarinnar á auðlindum Íslands. „Það er verkefni ríkisstjórnarinnar,“ segir Bolli. Hann telur fyrirætlanir frumvarp um makrílkvóta ekki til þess fallið að tryggja framgang þessa, og að nær væri að halda áfram núverandi hætti, þar sem kvóta er úthlutað eitt ár í senn.

Auk Bolla standa Agnar K. Þorsteinsson, Elín Björg Ragnarsdóttir, Guðrún Pétursdóttir, Henný Hinz, Jón Sigurðsson, Jón Steinsson og Þorkell Helgason standa að undirskriftasöfnuninni.

Undirskriftasöfnun vegna makríls

Bolli Héðinsson.
Bolli Héðinsson.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert