SA viðheldur fátækt í landinu

Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar.
Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Á aðalfundi Framsýnar sem fór fram í gær var ákveðið að heimila stjórn og trúnaðarmannaráði að færa allt að 100 milljónir króna úr félagssjóði í vinnudeilusjóð félagsins þar sem félagið reiknar með hörðum átökum á vinnumarkaði í júní þegar allsherjarverkföll eiga að hefjast. Fyrir á félagið 160 milljónir í vinnudeilusjóði.

„Aðalfundur Framsýnar stéttarfélags, haldinn 19. maí 2015 lýsir yfir fullri ábyrgð á hendur Samtökum atvinnulífsins nú þegar stefnir í allsherjarverkfall aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands 6. júní. Það er að loknu tveggja daga verkfalli sem boðað hefur verið til 28. og 29. maí,“ segir í ályktun fundarins. 

„Það er með ólíkindum að Samtök atvinnulífsins vilji viðhalda fátækt í landinu með kauptöxtum sem eru langt fyrir neðan viðurkennd opinber framfærsluviðmið. Samtökin hafa gengið afar langt í áróðri gegn hækkun lægstu launa upp í kr. 300.000 innan þriggja ára og fullyrða að slík hækkun muni valda óðaverðbólgu og efnahagslegu hruni. Samtök atvinnulífsins hafa verið klöppuð upp af Seðlabankanum sem er sömu skoðunar og samtökin. Þessi málflutningur hefur ekki verið hávær þegar  samið hefur verið við tekjuhæstu hópana um siðlausar launahækkanir í umboði Samtaka atvinnulífsins.

Aðalfundurinn hafnar alfarið þessum staðhæfingum Samtaka atvinnulífsins og hvetur þá til þess að stiga fram í nútímann með því að ganga að kröfum aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins sem Framsýn á aðild að. Þá krefst aðalfundurinn þess að verkalýðshreyfingin hniki ekki frá kröfunni um 300.000 króna lágmarkslaun og hafnar alfarið hugmyndum SA um % hækkanir sem auka alltaf ójöfnuðinn.

Það er algjör misskilningur að verðmætir lykilstarfsmenn leynist eingöngu  í ákveðnum stjórnunarstöfum í atvinnulífinu og það kalli sjálfkrafa á ofurlaun og kaupaukagreiðslur til þessara manna. Að mati aðalfundarins eru verðmætustu starfsmennirnir þeir sem snúa hjólum atvinnulífsins alla daga ársins. Þessir starfsmenn hafa ekki verið metnir að verðleikum og skrapa botninn þegar kemur að launakjörum í þessu landi. Þeir gera líka tilkall til þess að verða metnir að verðleikum.

Að lokum fagnar aðalfundurinn þeim árangri sem Framsýn hefur náð í kjarasamningum við á þriðja tug fyrirtækja á félagssvæðinu sem skrifað hafa upp á 300.000 króna lágmarkslaun. Fyrirtæki sem bera virðingu fyrir sínum starfsmönnum og hafna láglaunastefnu Samtaka atvinnulífsins. Heyr fyrir þeim!“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert