Beraði kynfæri sín á Austurvelli

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um klukkan tvö í dag um karlmann sem hafði berað kynfæri sín á Austurvelli í Reykjavík á sama tíma og þar stóð yfir viðburðurinn „Frelsum geirvörtuna- Berbrystingar Sameinumst!“ þar sem ungar konur beruðu brjóst sín.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir ennfremur að maðurinn hafi látið sig hverfa skömmu síðar og hafi ekki fundist þrátt fyrir leit.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert