14 fengu fálkaorðuna

Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon

Forseti Íslands sæmdi fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.

Þau sem orðuna fengu í dag eru, í stafrófsröð:

1. Aron Björnsson yfirlæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi skurðlækninga og heilbrigðismála

2. Egill Ólafsson tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar og leiklistar

3. Einar Jón Ólafsson kaupmaður, Akranesi, riddarakross fyrir framlag í þágu heimabyggðar

4. Guðjón Friðriksson rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskra bókmennta og söguritunar

5. Inga Þórunn Halldórsdóttir fyrrverandi skólastjóri, Kópavogi, riddarakross fyrir störf á vettvangi menntunar, uppeldis og fjölmenningar

6. Jóhann Sigurjónsson sjávarlíffræðingur og forstjóri Hafrannsóknarstofnunar, Reykjavík, riddarakross fyrir forystu á vettvangi fiskirannsókna og hafvísinda

7. Jón Egill Egilsson sendiherra, Reykjavík, stórriddarakross fyrir störf í opinbera þágu

8. Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar og kvikmyndagerðar

9. Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íþróttahreyfingar

10. Margrét Lísa Steingrímsdóttir þroskaþjálfi, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu fatlaðra barna og velferðar

11. Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri, Reykjavík, stórriddarakross fyrir störf í opinbera þágu

12. Stefán Reynir Gíslason tónlistarkennari og kórstjóri, Varmahlíð, riddarakross fyrir framlag til tónlistarlífs á landsbyggðinni

13. Steinunn Briem Bjarnadóttir Vasulka listamaður, Bandaríkjunum, riddarakross fyrir frumkvæði og nýsköpun í myndlist

14. Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og fyrrverandi formaður Sóknar, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu verkalýðshreyfingar og velferðar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert