Fyrsti heiðursdoktor deildarinnar

Anna Guðrún Jónasdóttir (t.h.) tekur við heiðursdoktorsnafnbótinni.
Anna Guðrún Jónasdóttir (t.h.) tekur við heiðursdoktorsnafnbótinni. mbl.is/Golli

Anna Guðrún Jónasdóttir, prófessor í stjórnmála- og kynjafræði við Háskólann í Örebro í Svíþóð, var í gær gerð að heiðursdoktor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, fyrst allra.

Athöfnin fór fram á ráðstefnu háskólans í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna, þar sem hún flutti einnig erindi.

Anna Guðrún var líka fyrst íslenskra kvenna til að ljúka doktorsprófi við deildina og hljóta prófessorsstöðu í kynjafræði.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert