Rannsókn á fjárkúgunum ólokið

Rannsókn lögreglu gengur vel.
Rannsókn lögreglu gengur vel. mbl.is/Þórður

Rannsókn tveggja fjárkúgunarmála gengur vel að sögn Friðriks Smára Björg­vins­sonar, yf­ir­lög­regluþjóns hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu. Önnur þeirra beindist að forsætisráðherra.

Eins og fram hefur komið handtók lögreglan á höfuðborgarsvæðinu systurnar Hlín Einarsdótttur og Malín Brand í tvígang. Fyrst eftir að þær gerðu tilraun til að kúga fé af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra en hann fékk bréf sent heim til sín þar sem peninga var krafist í skiptum fyrir þagmælsku.

Nokkrum dögum síðar voru systurnar kærðar fyrir aðra fjárkúgun. Karlmaður kærði þær fyrir að hafa haft af sér 700 þúsund krónur. Systurnar sögðu þá peninga vera miskabætur vegna nauðgunar en maðurinn á að hafa nauðgað Hlín. Eftir að maðurinn kærði fjárkúgunina kærði Hlín hann fyrir nauðgun.

Lögregla rannsakar öll þessi mál og segir rannsóknirnar ganga vel en vill ekkert gefa upp um stöðuna að öðru leyti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert