Byssurnar enn á landinu

Vopnin verða flutt burt eins fljótt og unnt er að …
Vopnin verða flutt burt eins fljótt og unnt er að sögn starfandi upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar - mynd úr safni mbl.is/Árni Sæberg

Tæknilegt vandamál kom upp við flutning MP5 byssa Landhelgisgæslunnar sem senda átti til Noregs fyrir helgi. Reynt verður að koma vopnunum úr landi eins fljótt og unnt er að sögn Ásgríms L. Ásgrímssonar, starfandi upplýsingafulltrúa Gæslunnar. Að sögn Ásgríms er um öll vopnin sem keypt voru að ræða.

Ekki stendur til að nýjar byssur verði keyptar í staðinn. „Landhelgisgæslan mun ekki kaupa nein ný vopn í stað þeirra sem nú verða send úr landi,“ segir Ásgrímur.

Fjöl­miðlar fjölluðu mikið um málið á síðasta ári en Land­helg­is­gæsl­an taldi að um gjöf  frá Norðmönn­um væri að ræða. Norski her­inn sagði hins vegar á sínum tíma að alltaf hefði staðið til að greiðsla kæmi fyr­ir vopn­in. Gæsl­an hef­ur sagt að ekki komi til greina að kaupa byss­urn­ar af Norðmönn­um og fyr­ir vikið var ákveðið að þær yrðu flutt­ar aft­ur til Nor­egs. Vopn­in hafa verið geymd um all­nokkra hríð í sér­stakri geymslu á veg­um Gæsl­unn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert