Siggi hakkari ákærður fyrir kynferðisbrot

Siggi hakkari í héraðsdómi Reykjaness.
Siggi hakkari í héraðsdómi Reykjaness. mbl.is/Árni Sæberg

Sigurður Ingi Þórðarson, sem betur er þekktur undir nafninu Siggi hakkari, hefur verið ákærður fyrir brot gegn níu drengjum, meðal annars kynferðisbrot. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Var Sigurður á síðasta ári dæmdur í tveggja ára fangelsi, meðal annars fyrir fjársvik. Áður hefur hann einnig verið dæmdur fyrir að hafa tælt 17 ára dreng til að stunda við hann kynmök með blekkingum. 

Í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir Sigurði, sem féll í Hæstarétti þann 5. nóvember síðastliðinn, kom fram að lögreglan væri að rannsaka meint brot hans gegn 11 drengjum. Munu brotin gegn drengjunum varða þau ákvæði hegningarlaga er snúa að nauðgun, samræði við börn undir 15 ára aldri, tælingu barna til samræðis og fégreiðslu fyrir vændi og vændi barns. 

Í frétt Rúv kemur fram að tvö þessara meintra brota hafi ekki leitt til ákæru.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert