Vakta lúsmý með gildrum

Lúsmý herjar á Ísland.
Lúsmý herjar á Ísland. Erling Ólafsson

Matvælastofnun hefur nú hafið vöktun á lúsmýi (Culicoides) í samstarfi við nokkrar Náttúrustofur og Landbúnaðarháskóla Íslands. Ástæðan fyrir þörf á vöktuninni er m.a. sú að þessi flugnategund getur borið veirur milli dýra, sem valda alvarlegum sjúkdómum. Gildrum hefur verið komið fyrir á nokkrum stöðum á landinu og fyrirhugað er að setja þær upp á hverju sumri héðan í frá.

Það er áhyggjuefni ef þessi tegund nær fótfestu hér á landi, segir í fréttatilkynningu frá Matvælastofnun, þar sem nokkrar undirtegundir hennar eru þekktar fyrir að bera tilteknar veirur milli dýra, sem valda alvarlegum sjúkdómum í búfé. Meðal annars er um að ræða blátunguveiru sem hefur verið að færast norður eftir Evrópu á síðustu árum.

Getur dreift blátunguveiru

Blátunga er sjúkdómur í sauðfé, geitum og nautgripum. Helstu einkenni sjúkdómsins eru hár hiti, slefa, bólgur í andliti og tungu, og tungan verður í sumum tilvikum blá. Annar sjúkdómsvaldur sem lúsmýið getur borið milli dýra er veira sem uppgötvaðist fyrst í Schmallenberg í Þýskalandi árið 2011 og hefur verið kennd við þann stað. Sú veira veldur vansköpun á fóstrum kúa, kinda og geita. Til viðbótar dreifingu sjúkdóma er þessi flugnategund þekkt fyrir að valda ofnæmisviðbrögðum í húð hrossa, hinu svonefnda sumarexemi, sem hrjáir oft íslensk hross sem flutt hafa verið til útlanda.

Fram til þessa hefur ekki verið talin hætta á að upp kæmu faraldrar af völdum blátungu- og Schmallenberg veira hér á landi, jafnvel þótt þær bærust til landsins, þar sem talið hefur verið að flugurnar sem bera þær milli dýra hafi ekki náð að festa sig í sessi. En vegna örra breytinga í skordýrafánu landsins hefur Matvælastofnun talið nauðsynlegt að fylgst sé með tilvist þessara flugna og í vetur fékkst fjárveiting til þess verkefnis. Stofnunin pantaði gildrur sem bárust til landsins í vor og nú hefur þeim verið komið fyrir í samstarfi við nokkrar Náttúrustofur og Landbúnaðarháskóla Íslands, sem munu fylgjast reglubundið með þeim. Stefnt er að því að setja gildrurnar upp á hverju sumri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert