Lögreglan leitar ræningja

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú manns sem framdi rán í versluninni Samkaup í Hófgerði 30 í Kópavogi í dag. Má sjá ræningjann á meðfylgjandi myndum.

Tilkynningin í heild sinni:

Ræninginn, sem sést á meðfylgjandi myndum, ógnaði starfsfólki með hnífi og hafði síðan á brott með sér einhverja fjármuni. Hann er um 180 sm á hæð, ljóshærður, grannvaxinn og var klæddur í gráa hettupeysu, bláar gallabuxur og svarta Nike skó. Þá huldi hann andlit sitt með svörtum klút. Talið er að maðurinn sé í kringum tvítugt, eða rúmlega það. Þess má geta að rán var framið í sömu verslun sl. laugardag og er það óupplýst. Ein myndanna er úr því ráni, en á henni er ræninginn berhöfðaður.Grunur leikur á að um sama mann sé að ræða og rændi verslunina í dag.

 

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ræningjann eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið adalsteinna@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert