Náttúruspjöll unnin á Þingvöllum

Þrír erlendir ferðamenn sem gistu í Vatnskoti á Þingvöllum um helgina unnu miklar skemmdir á viðkvæmum gróðri og mosa þegar þeir rifu upp mikið magn af mosa í þeim tilgangi að einangra tjöld sín betur.

Á Facebook-síðu þjóðgarðsins eru birtar myndir af tjöldum ferðamannanna. Má á þeim sjá hvernig þeir hafa raðað viðkvæmum gróðrinum þétt upp við tjöld sín. Fyrir vikið skildu þeir eftir mörg djúp og ljót sár í náttúru landsins. 

Voru það landverðir þjóðgarðsins sem urðu varir við mosabeð allt í kringum tjöldin tvö. Gáfu þeir sig því á tal við ferðamennina. „Landverðir lásu yfir þeim og voru ferðalangarnir djúpt miður sín, en þeir höfðu talið að þetta væri í lagi. Síðar hurfu þeir á brott,“ segir á síðu Þingvalla.

Kemur þar einnig fram að landverðir hafi því næst eytt drjúgum tíma í að hylja sum sár og mun það hafa tekist að einhverju marki. Mosagróður er hins vegar afar viðkvæmur og tekur langan tíma að jafna sig.

Náttúruspjöllin hafa verið tilkynnt til lögreglu.

Nokkrir tjaldgestir sem gistu í Vatnskoti um helgina unnu skemmdir á gróðri og mosa þegar þeir rifu upp mikið magn af...

Posted by Þjóðgarðurinn á Þingvöllum / Thingvellir National Park on Tuesday, July 28, 2015
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert