Breyta ekki afstöðu Íslands

Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis.
Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis. mbl.is/Eggert

Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur ekki tilefni til að Ísland dragi stuðning sinn við viðskiptaþvinganir Evrópusambandsins gagnvart Rússlandi til baka.

Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.

Dmi­try Peskov, talsmaður Vla­dimir Pútín Rúss­lands­for­seta, sagði í vik­unni að svo gæti farið að stjórn­völd gripu til aðgerða gegn þeim ríkj­um sem styðja refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna inn­limun­ar Krímskaga og átak­anna í Úkraínu. Til­efnið var yf­ir­lýs­ing Federicu Mog­herini, ut­an­rík­is­mála­stjóra Evr­ópu­sam­bands­ins, um fram­leng­ingu aðgerða en þar var Ísland á lista yfir þátt­töku­ríki.

Ljóst er að loki rúss­nesk stjórn­völd fyr­ir inn­flutn­ing ís­lenskra fiskaf­urða verður skaðinn mikill, bæði fyr­ir ís­lensk og rússnesk fyrirtæki.

Ísland hefur ávallt stutt viðskiptaþvinganirnar. „Ísland tók þá ákvörðun strax snemma á síðasta ári að taka þátt í þeim aðgerðum sem bæði samstarfsríki okkar á evrópska efnahagssvæðinu og í Norður-Ameríku hafa gripið til vegna innlimunar Krímskaga og afskipta Rússa af málefnum Úkraínu,“ sagði Birgir.

Forsendur hefðu ekki breyst þannig að tilefni væri til að endurskoða þá ákvörðun.

Ut­an­rík­is­mála­nefnd Alþingis mun funda á miðviku­dag eða fimmtu­dag í næstu viku til að ræða mögu­leg­ar viðskiptaþving­an­ir Rússa gegn Íslend­ing­um.

Fréttir mbl.is:

Kaupendur úti áhyggjufullir

Hóta að beita Ísland refsiaðgerðum

Eigum ekki í prívat útistöðum við Rússa

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert