Píratar með 35% fylgi

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina, stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, á tímabilinu 22. til 30. júlí 2015. Fylgi Pírata mældist nú 35,0%, borið saman við 33,2% í síðustu könnun sem lauk 30. júní  og mælast með mest fylgi allra flokka á Íslandi.

Píratar hafa notið stuðnings yfir 30% kjósenda síðan í apríl.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,1%, borið saman við 23,8% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,2%, borið saman við 10,6% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 10,2%, borið saman við 12,0% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 9,6% borið saman við 9,3% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 4,4%, borið saman við 5,6% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 33,2% en mældist 30,4% í síðustu mælingu, sem lauk þann 30. júní, og 31,9% í maí, sem lauk 24. júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert