Lokanir vegna gleðigöngu á morgun

Úr gleðigöngunni í fyrra.
Úr gleðigöngunni í fyrra. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Gleðiganga Hinsegin daga og hátíðahöld henni verða á morgun, laugardaginn 8. ágúst.

Gangan leggur af stað frá Vatnsmýrarvegi (nálægt BSÍ) klukkan 14 og að henni lokinni hefst hátíðardagskrá við Arnarhól sem stendur til kl. 17:30.

Í tengslum við hátíðina er búist við miklum fólksfjölda í miðborginni og óhjákvæmilega verða þar raskanir á bílaumferð. Athygli er vakin á því að götur verða lokaðar í kringum gönguleiðina og hátíðasvæðið frá kl. 12 á hádegi og þar til hátíðardagskrá við Arnarhól lýkur (sjá meðfylgjandi götulokanakort).

Íbúar Reykjavíkur og gestir eru beðnir að sýna samstarfsvilja og umburðarlyndi og hvattir til að nýta sér þjónustu Strætó (sjá www.straeto.is). Einnig benda Hinsegin dagar ökumönnum á að í miðborginni eru bílastæðahús sem oft hafa verið illa nýtt á meðan hátíðahöldunum stendur og engin ástæða er til að leggja bílum ólöglega. Leigubílar munu hafa aðstöðu til að taka upp farþega í Ingólfsstræti (á bak við styttuna af Ingólfi Arnarsyni) á meðan götulokunum stendur.

Allar upplýsingar um gönguna má finna á www.hinsegindagar.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert