Flugvélin komin niður úr fjallinu

Hlutar úr flugvélinni voru fluttir niður að Bug í Hörgárdal …
Hlutar úr flugvélinni voru fluttir niður að Bug í Hörgárdal með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þeir voru síðar settir á flugningabíl sem keyrir þá til Reykjavíkur. Skapti Hallgrímsson

Búið er að flytja flugvélina sem brotlenti í Barkárdal í Hörgársveit niður úr fjallinu Gíslahnúk, en hún var flutt í nokkrum hlutum með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þetta staðfestir Auðunn Kristinsson, verk­efna­stjóri aðgerðasviðs Land­helg­is­gæsl­unn­ar, í samtali við mbl.is.

Hlutarnir voru settir á flutningabíl og verða þeir keyrðir til Reykjavíkur þar sem Rannsóknanefnd samgönguslysa mun rannsaka tildrög slyssins betur.

Um tíu manns voru á jörðu niðri rannsóknarnefndinni, lögreglunni og björgunarsveitum, auk áhafnar þyrlunnar í lofti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert