Alvarleg bilun hjá Landsneti

Viðbúið er að skerðingar verði áfram í gildi til notenda …
Viðbúið er að skerðingar verði áfram í gildi til notenda í Vestmannaeyjum á skerðanlegum flutningi. mbl.is/Árni Sæberg

Vegna bilunar í spenni í tengivirki Landsnets í Rimakoti á Landeyjasandi varð straumlaust á hluta Suðurlands rétt fyrir klukkan 20 í gærkvöldi. Rafmagn komst fljótlega á aftur og dísilvélar voru ræstar í Vestmannaeyjum og í Vík.

Þar er rafmagn hjá almennum notendum en skerða hefur þurft afhendingu rafmagns til notenda sem eru á skerðanlegum flutningssamningum í Eyjum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Landsnets. 

Þar segir að verið sé að meta ástand spennisins í Rimakoti og eiga niðurstöður þeirrar athugunar að liggja fyrir seinna í dag. „Eins og staðan er nú virðist sem bilunin sé alvarleg og spennirinn þurfi að fara í frekari viðgerð. Því er viðbúið að skerðingar verði áfram í gildi til notenda í Eyjum á skerðanlegum flutningi,“ segir í tilkynningu Landsnets. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert