Fjöldi brunasára en líðan Arngríms stöðug

Arngrímur Jóhannsson, flugmaður.
Arngrímur Jóhannsson, flugmaður. Ómar Óskarsson

Arngrímur Jóhannsson, flugmaður og fyrrverandi forstjóri flugfélagsins Atlanta, hlaut alvarleg brunasár víða um líkamann og hefur farið í aðgerð vegna sáranna sem hann hlaut í flugslysinu sem varð í Barkárdal í Hörgársveit á sunnudaginn. Í tilkynningu frá fjölskyldu hans kemur fram að Arngrímur sé enn á gjörgæslu og að líðan hans sé stöðug. 

Vélin brotlenti á fjallinu Gíslahnúk í Barkárdal og lést einn maður í slysinu. Flugvélin var flutt í burtu á mánudaginn til Reykjavíkur og er nú til rannsóknar hjá Rannsóknarnefnd flugslysa.

Tilkynningu fjölskyldunnar má lesa í heild hér:

Arngrímur hlaut alvarleg brunasár á öðrum handlegg og báðum fótleggjum. Hann fór í aðgerð vegna þeirra brunasára í gær. Hann er enn á gjörgæslu og er líðan hans stöðug.  Við viljum koma á framfæri þakklæti fyrir það næði sem hann hefur fengið síðustu daga. Það er nauðsynlegt fyrir áframhaldandi bata hans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert