Lést við Jökulsárlón

mbl.is

Erlend kona á sextugsaldri lést í slysi við Jökulsárlón í kvöld. Varð konan undir hjólabát á planinu við þjónustumiðstöð lónsins. Konan var við lónið með fjölskyldu sinni þegar slysið átti sér stað. 

Tildrög slyssins eru enn ókunn en lögregla var á störfum á vettvangi fram á kvöld í gær. 

Frétt mbl.is: Alvarlegt slys við Jökulsárlón

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert