Nýr spítali verði við Hringbraut

Horft yfir núverandi byggingar Landspítalans við Hringbraut. Í skýrslunni segir …
Horft yfir núverandi byggingar Landspítalans við Hringbraut. Í skýrslunni segir m.a., að bygging nýs spítala við Hringbraut og flutningur starfsemi þangað úr Fossvogi muni valda hlutfallslega lítilli aukningu á umferðarálagi á háannatíma. mbl.is/Ómar

Ekki er tilefni til að breyta fyrirliggjandi ákvörðun um að byggja nýjan Landspítala við Hringbraut. Þetta er niðurstaða rýniskýrslu KPMG vegna byggingar nýs spítala. Heilbrigðisráðherra hefur fengið skýrsluna afhenta sem hefur verið gerð opinber.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýjum Landspítala ohf. Þar segir ennfremur, að í framhaldi af erindi velferðarráðuneytisins, fyrr í þessum mánuði, hafi Nýr Landspítali falið KPMG með samningi að yfirfara fyrirliggjandi gögn um hagkvæmni þess að byggja nýjar sjúkrahúsbyggingar við Hringbraut.

Dýrara að byggja á nýjum stað

Í tilkynningunni er farið yfir helstu niðurstöður sem eru eftirfarandi:

  • Skipulagsmál: Skipulag og form bygginga hefur verið þannig hannað að vel fari um nýjan sameinaðan spítala við Hringbraut. Breytingar í skipulagsferlinu tóku mið af helstu athugasemdum sem gerðar voru við form og umfang bygginga. Staðsetningin fellur vel að heildarskipulagi og framtíðarmynd Reykjavíkurborgar að mati borgaryfirvalda.

  • Byggingarkostnaður: Núvirtur byggingarkostnaður reiknast 21.ma.kr. hærri á nýjum stað en við Hringbraut. Fasteignir LSH við Hringbraut yrðu því að seljast á því verði til að kostirnir tveir teljist jafn kostnaðarsamir.

  • Rekstrarkostnaður: Núvirði aukins rekstrarhagræðis ef byggt er á nýjum stað frá grunni reiknast tæplega 3 ma. kr. að teknu tilliti til kostnaðar vegna truflunar á rekstri vegna framkvæmda á Hringbrautarlóð

  • Kostnaður við fólksflutninga: Hringbraut og Sævarhöfði virðast bestu kostirnir m.t.t. dreifingar notenda og starfsfólks og því kostnað við fólksflutninga. Aðrir kostir koma verr út í þeim samanburði.

  • Umferðarálag: Hringbrautarlóðin er við stórar samgönguæðar og mislæg gatnamót og ekki er talin þörf á meiriháttar umferðamannvirkjum við sameiningu starfsemi LSH við Hringbraut. Bygging spítala við Hringbraut og flutningur starfsemi þangað úr Fossvogi mun valda hlutfallslega lítilli aukningu á umferðarálagi á háannatíma.

Þá segir, að það sé mat KPMG að framangreindir þættir gefi ekki tilefni til að breyta fyrirliggjandi ákvörðun um að byggja nýjan spítala við Hringbraut.

Margir hafa gagnrýnt staðarvalið

Í tilkynningunni er tekið fram, að hlutverk KPMG hafi verið að yfirfara fyrirliggjandi gögn um hagkvæmni, kostnað, skipulagsmál og staðarval Nýs Landspítala (NLSH) og skrifa samantekt um helstu niðurstöður. Nánar tiltekið var verkefni KPMG eftirfarandi:

  • Rýna í helstu fyrirliggjandi gögn og skýrslur sem varða hagkvæmni, kostnað og skipulagsmál vegna staðsetningar NLSH.
  • Yfirfara helstu forsendur og útreikninga á hagkvæmni verkefnisins.
  • Yfirfara helstu forsendur að baki því að Hringbraut var valin sem framtíðarstaðsetning.
  • Yfirfara helstu efnisatriði þeirrar gagnrýni sem fram hafa komið á staðarval.
  • Leggja sjálfstætt og óháð mat á það hvort Hringbraut sé besti kostur með tilliti til hagkvæmni og annarra helstu áhrifaþátta miðað við þær upplýsingar sem fyrir liggja.

Þá er bent á, að ýmsir hafi gagnrýnt staðarvalið í ræðu og riti á undanförnum árum. Gagnrýnin hafi verið af ýmsum toga, en snúi að því að betra kunni að vera að byggja nýjan spítala á öðrum stað. Sú gagnrýni byggi yfirleitt á fimm megin atriðum:

  1. Skipulagsmál -Staðsetningin við Hringbraut sé ekki góð og byggi á úreltum forsendum. Jafnframt hafa komið fram athugasemdir við form og umfang bygginga.
  2. Byggingakostnaður, að frádregnu söluandvirði eigna, sé hærri á Hringbraut en á nýjum stað.
  3. Rekstur sé hagkvæmari ef nýr spítali er byggður frá grunni á nýjum stað.
  4. Kostnaður við fólksflutninga (starfsmenn, nemendur og aðstandendur sjúklinga) sé hár ef byggt er við Hringbraut
  5. Umferðarálag stofnbrauta fari yfir þolmörk ef byggt er við Hringbraut

„Lengi hefur verið unnið eftir þeirri stefnumörkun og ákvörðun að byggja nýjan spítala við Hringbraut. Það hefur verið talinn besti og hagkvæmasti kostur hvað staðsetningu varðar. Í skýrslu KPMG er varpað ljósi á það hvort ástæða sé til þess að breyta út af þeirri ákvörðun. Til þess hljóta að þurfa að vera afgerandi rök sem gera aðra staðsetningu mun betri eða hagkvæmari. Þetta er skoðað út frá helstu gagnrýnisatriðum sem fram hafa komið,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert