58.500 m² meðferðarkjarni

Frá undirrituninni í dag.
Frá undirrituninni í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra skrifaði í dag undir samning við Corpus hópinn um fullnaðarhönnun á meðferðarkjarna vegna byggingar nýs Landspítala við Hringbraut. Áætluð heildarstærð meðferðarkjarnans er um 58.500 m². Byggingin mun verða á 6 hæðum ofan götu, 5 hæðum neðan götu auk kjallara.

Samningurinn er milli Nýs Landspítala ohf. og Corpus hópsins, sem var lægstbjóðandi í verkið, í útboði sem fram fór síðastliðið sumar í samræmi við fjárlög ársins 2015 og lög um skipan opinberra framkvæmda, að því er segir í tilkynningu sem Nýr Landspítali hefur sent.

Þar segir ennfremur, að ákvæði samningsins snúi að fullnaðarhönnun meðferðarkjarna nýs Landspítala. Hönnunin muni byggja á fyrirliggjandi forhönnun verksins sem þegar sé lokið. Einnig hafi allar skipulagsáætlanir verið samþykktar vegna verkefnisins þ.e.svæðaskipulag, aðalskipulag og deiliskipulag lóðarinnar við Hringbraut.

„Áætluð heildarstærð meðferðarkjarnans er um 58.500 m². Byggingin mun verða á 6 hæðum neðan götu, 5 hæðum ofan götu auk kjallara. Mun byggingin rísa á lóð Landspítala við Hringbraut. Meðferðarkjarninn mun tengjast öðrum byggingum á Landspítalalóðinni,“ segir í tilkynningunni.

Í þessari viku mun Nýr Landspítali bjóða út verkframkvæmd á sjúkrahóteli.  Áætlað er að hefja framkvæmdir þar í byrjun nóvember og mun það rísa á Hringbrautarlóðinni norðan kvennadeildar Landspítalans, segir ennfremur.

Samninginn undirrituðu Kristján Þór og Grímur M. Jónasson frá VSÓ ráðgjöf fyrir hönd Corpus hópsins. Fjögur fyrirtæki standa að Corpus hópnum þ.e. Basalt arkitektar, Hornsteinar arkitektar, Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar og VSÓ ráðgjöf.

Meðal viðstaddra voru Dagur B.Eggertsson, borgarstjórinn í Reykjavík, og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, og vottuðu þeir samninginn.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert