Opna veginn kl. 15 í dag

Siglufjarðarvegur verður opnaður kl. 15 í dag.
Siglufjarðarvegur verður opnaður kl. 15 í dag. mbl.is/Sigurður Ægisson

Siglufjarðarvegur verður opnaður klukkan þrjú í dag. Þar verður þó áfram unnið að viðgerðum eftir skriðuföllin um síðustu helgi.

Umferðarhraði verður á köflum tekinn niður í 50 km/klst og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og tillitsemi, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert