Tvö brotanna hafa verið kærð

Kærur hafa verið lagðar fram í tveimur málum af þremur.
Kærur hafa verið lagðar fram í tveimur málum af þremur.

Þrjú kynferðisbrot sem tilkynnt voru til lögreglunnar í Vestmannaeyjum og eru talin hafa veirð framin á Þjóðhátíð eru enn til rannsóknar. Tvær kærur hafa verið lagðar fram en að sögn lögreglu verður kæra líklega ekki lögð fram í þriðja málinu.

Neyðarmóttöku nauðgana á Landspítalanum bárust að minnsta kosti þrjár tilkynningar um kynferðisbrot um verslunarmannahelgina, öll framin á Þjóðhátíð. Konurnar voru allar sagðar ungar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert