Nafn konunnar sem lést við Jökulsárlón

mbl.is

Konan sem lést í slysi við Jökulsárlón 27. ágúst sl. hét Shelagh Denise Donovan, fædd 13. febrúar 1956. 

Hún bjó í Kanada og var í heimsókn á Íslandi ásamt eiginmanni sínum og syni. 

Hún varð undir hjólabát á planinu við þjónustumiðstöð lónsins og er talið að hún hafi látist samstundis. Lögreglan á Suðurlandi hefur málið til rannsóknar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert