Fjárkúgun enn á borði lögreglu

Systurnar voru handteknar í Vallahverfinu í Hafnarfirði í lok maí. …
Systurnar voru handteknar í Vallahverfinu í Hafnarfirði í lok maí. Myndin er úr safni. mbl.is/Þórður

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á tveimur fjárkúgunarmálum stendur enn yfir, en annað málið beinist að forsætisráðherra. Tvær konur, sem eru systur, voru handteknar í Hafnarfirði lok maí í tengslum við málið. Ekki liggur fyrir hvenær rannsóknin muni ljúka en hún er langt komin, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns. 

Systurnar, Hlín Einarsdóttir og Malín Brand, voru handteknar í lok maí grunaðar um að hafa reynt kúga fé af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra.  Hann fékk bréf sent heim til sín þar sem pen­inga var kraf­ist í skipt­um fyr­ir þag­mælsku.

Nokkr­um dög­um síðar voru syst­urn­ar kærðar fyr­ir aðra fjár­kúg­un. Karl­maður kærði þær fyr­ir að hafa haft af sér 700 þúsund krón­ur. Syst­urn­ar sögðu þá pen­inga vera miska­bæt­ur vegna nauðgun­ar en maður­inn á að hafa nauðgað Hlín. Eft­ir að maður­inn kærði fjár­kúg­un­ina kærði Hlín hann fyr­ir nauðgun.

Rannsóknin hefur nú staðið yfir í rúma þrjá mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert