Alvarlegt slys við Ögurhvarf

mbl.is/Hjörtur

Hjólreiðamaður var fluttur á slysadeild Landspítalans í morgun eftir að hafa lent í árekstri við bíl við Ögurhvarf í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins er maðurinn nokkuð mikið slasaður. Tilkynning um slysið barst kl. 8.54 í morgun. 

Ekki fengust frekari upplýsingar um tildrög slyssins að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert