Búast við um 100 flóttamönnum á árinu

Frá blaðamannafundinum í dag.
Frá blaðamannafundinum í dag. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að verja tveimur milljörðum króna til flóttamannamála. Búist er við fyrsta hópnum úr flóttamannabúðum í Líbanon í desember næstkomandi. Í samtali við mbl.is segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra að gert sé ráð fyrir að í kringum hundrað flóttamenn muni koma til landsins á þessu ári

Tekur hann fram að í þessari tölu sé litið bæði til svokallaðra kvótaflóttamanna og þeirra sem koma til landsins eftir öðrum leiðum. Aðrar tölur hafi ekki verið negldar niður enn sem komið er.

Einum milljarði króna á aukafjárlögum verður varið til móttöku flóttamanna hér á landi og alþjóðlega aðstoð við flóttamenn og einum milljarði króna á fjárlögum næsta árs. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í Reykjavík í dag.

Fjármagninu verður varið til þrenns konar verkefna:

  1. Til fjárstuðnings við alþjóðastofnanir og hjálparsamtök sem vinna með flóttafólki erlendis, s.s. Flóttamannastofnun, Barnahjálp, Neyðarsjóð og Matvælaaðstoð Sameinuðu þjóðanna. Fénu verði m.a. varið til kaupa á mat, lyfjum og hjálpartækjum og til stuðnings við verkefnið „Heilsugæsla á hjólum“ sem Rauði kross Íslands hefur staðið að.
  2. Til móttöku flóttafólks og hælisleitenda til Íslands, þar sem áhersla verði lögð á að hjálpa fólki að koma sér vek fyrir hér á landi, aðlagast samfélaginu og hefja hér nýtt líf. Er þar bæði gert ráð fyrir að flóttamönnum sem hingað kæmu fyrir milligöngu Flóttamannastofnunar SÞ og þeim sem koma til landsins eftir öðrum leiðum. Vinna við móttöku flóttafólks er hafin í samvinnu við stofnunina og er búist við fyrsta hópnum úr flóttamannabúðum í Líbanon í desember næstkomandi.
  3. Til aðgerða sem umbylt geta og hraðað afgreiðslu hælisumsókna hérlendis, og til að bregðast við mikilli fjölgun þeirra, þannig að úrvinnsla þeirra taki ekki eins langan tíma og hingað til, með þeirri óvissu og óþægindum sem af því leiðir.

Þá segir í tilkynningu ríkisstjórnarinnar:

Ráðherranefnd um málefni flóttafólks og innflytjenda mun fela fimm manna verkefnastjórn, skipaðri sérfræðingum, að vinna með nefndinni að ítarlegum tillögum að skiptingu fjárins og skulu þær liggja fyrir áður en önnur umræða fer fram á Alþingi um fjárlaga­frumvarp ársins 2016. Þá verður í fjárlagagerð á næsta ári vegna ársins 2017 tekið mið af fjárþörf aðgerðanna. Einnig verði einum milljarði króna skv. fjáraukalögum þessa árs varið til að taka á móti fyrsta hópi flóttafólks frá Sýrlandi, til fjárstuðnings við alþjóðastofnanir og borgarasamtök á vettvangi og til að bregðast við óvenju mikilli fjölgun hælisleitenda á þessu ári en fyrir liggur að umtalsverður hluti þeirra hlýtur stöðu flóttamanna hér á landi.  

Samþykki Alþingi ofangreindar tillögur ríkisstjórnarinnar verður Ísland meðal þeirra þjóða sem mest leggja af mörkum til aðstoðar flóttafólki vegna vandans í Sýrlandi.. Ríkisstjórnin mun hvetja aðrar þjóðir til að fylgja fordæmi Íslands og hyggst á næstunni taka upp málefni flóttafólks á alþjóðavettvangi. Forsætisráðherra mun meðal annars ræða þau á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í New York í næstu viku, þegar Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fer þar fram.

Ráðherranefndin var skipuð þann 1. september sl. og hefur að undanförnu unnið með fagfólki á ýmsum sviðum að því að kortleggja vandann og móta tillögur að aðgerðum. Stjórnvöld hafa verið í góðum samskiptum við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og ítrekað vilja Íslendinga til að hjálpa. Þá hafa stjórnvöld verið í sambandi við sveitarfélög í landinu  um getu þeirra og vilja til að taka á móti fólki úr hópi hælisleitenda og flóttafólks. Ríkisstjórnin fagnar þeim mikla áhuga sem þau og einstaklingar hafa sýnt á að aðstoða flóttafólk, með ýmsum hætti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert