Greinir frá ákvörðuninni á morgun

Ólöf Nordal, innanríkisráðherra.
Ólöf Nordal, innanríkisráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, hyggst greina frá því á morgun hvort hún ætli að gefa kost á sér í embætti varaformanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins sem fer fram 23. til 25. október næstkomandi.

Þetta staðfestir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, aðstoðarmaður Ólafar, í samtali við mbl.is

Fjölmörg félög sjálfstæðismanna hafa að undanförnu skorað á Ólöfu að gefa kost á sér í embættið.

Þannig skoraði Félag sjálfstæðismanna í Langholtshverfi á Ólöfu að gefa kost á sér hinn 22. september sl., fundur fulltrúaráðs og sjálfstæðisfélaga á Seltjarnarnesi sendi frá sér áskorun hinn 29. september, fundur Samtaka eldri sjálfstæðismanna skoraði á Ólöfu hinn 30. september og sama dag sendu tíu forystumenn innan Sjálfstæðisflokksins frá sér yfirlýsingu þar sem þeir skoruðu á Ólöfu að gefa kost á sér til varaformennsku.

Ólöf, sem var áður varaformaður Sjálfstæðisflokksins á árunum 2010 til 2013, hefur ekki viljað tjá sig um áskoranirnar eða mögulegt varaformannsframboð í samtali við mbl.is.

Hanna Birna Kristjánsdóttir hætti við varaformannsframboð 

Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, tilkynnti í gær um að hún hygðist ekki bjóða sig fram til áframhaldandi setu sem varaformaður á komandi landsfundi í bréfi sínu til sjálfstæðismanna. Áður hafði hún sagt í kvöldfréttum Stöðvar 2 hinn 29. ágúst sl. að hún ætlaði að sækjast eftir áframhaldandi setu.

Í gær skoraði al­menn­ur fé­lags­fund­ur í Sjálf­stæðis­fé­lag­inu Kára í Rangárþingi eystra á Unni Brá Kon­ráðsdótt­ur, alþing­is­mann, að gefa kost á sér í embætti vara­for­manns á kom­andi lands­fundi.

Unnur Brá sagði í samtali við mbl.is í dag að augljóst væri að hún þyrfti „að íhuga þetta“.

Frétt mbl.is: Hrærð og íhugar málið

Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum innanríkisráðherra, ætlar ekki …
Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum innanríkisráðherra, ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi setu. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Skorað hefur verið á Unni Brá Konráðsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, að …
Skorað hefur verið á Unni Brá Konráðsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, að gefa kost á sér í embætti varaformanns á komandi landsfundi. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert