Hva, þetta eru bæklingar um mig!

Eymundur Eymundsson, ráðgjafi í Grófinni, geðverndarmiðstöð á Akureyri. Hann glímdi …
Eymundur Eymundsson, ráðgjafi í Grófinni, geðverndarmiðstöð á Akureyri. Hann glímdi lengi við kvíða og félagsfælni. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Eymundur Eymundsson var orðinn 38 ára þegar honum var fært lesefni þar sem hann var til meðhöndlunar á Kristnesi vegna slitgigtar. Þá áttaði Akureyringurinn sig loks á því hvers vegna honum hafði liðið jafn illa og raun bar vitni frá því hann var barn. Eymundur áttaði sig loksins á því að hann átti von: „Það er ekki hægt að lýsa því hve vonin er mikilvæg,“ segir hann. 

Eymundur Eymundsson, ráðgjafi í Grófinni, geðverndarmiðstöð á Akureyri, glímdi við mikinn kvíða frá því hann var í 1. bekk grunnskóla. Nokkrum árum seinna hafði kvíðinn þróast í félagsfælni en hann þorði ekki að tala um það við nokkurn mann; óttaðist að verða skammaður.

Eymundur glímir við slitgigt og var þess vegna á endurhæfingardeild Sjúkrahússins á Akureyri í Kristnesi árið 2005. Þar sá hann fyrst bæklinga um kvíða, félagsfælni og þunglyndi. „Ég fór að grenja þegar ég las um sjálfan mig í þremur bæklingum. Þarna sé ég í fyrsta skipti ástæðuna fyrir því hvernig mér hafði liðið síðan ég var krakki,“ segir hann við Morgunblaðið.

Hugsaði nær daglega um dauðann

Eymundur segist hafa hugsað um dauðann nánast daglega síðan hann var 12 ára og það hafi alls ekki verið sjálfsagt mál að hann var á lífi þegar þarna var komið sögu. „Ég hafði bara ekki kjarkinn til að taka eigið líf – sem betur fer.“

Þennan dag í Kristnesi tók lífið nýja stefnu. Eymundur skynjaði að hann ætti von og ákvað að leita sér aðstoðar. „Það er ekki hægt að lýsa því hve vonin er mikilvæg.“

Enginn áttaði sig á því hve Eymundi leið illa. „Ég var góður leikari og faldi vanlíðanina með trúðslátum.“

Hann hóf samtalsmeðferð hjá heimilislækni sínum. Vildi alls ekki fara á geðdeild; segist hafa verið haldinn fordómum um þann stað. Eymundur hóf að taka lyf en ekki leið á löngu þar til hann fór að drekka ofan í þau. „Frá 16 ára aldri hafði ég notað áfengi til að geta verið með félögunum; þorði það ekki annars. En þarna áttaði ég mig á því að þetta gekk ekki og fór í áfengismeðferð á Vog. Þegar þangað kom gerðist eitthvað; Guð talaði til mín og sagði: Þú getur eignast líf en verður að vinna fyrir því. Nú hef ég ekki snert áfengi í níu ár og það er grunnurinn að því að ég eignaðist líf.“

Sjálfsvirðingin var engin

Eymundur fór út á vinnumarkaðinn strax að loknum grunnskóla. Sjálfsvirðingin var engin og hann taldi sjálfum sér trú um að hann hefði ekkert í framhaldsskóla að gera. Eftir að hann fékk hjálp og lífið tók nýja stefnu fór hann í almennt nám hjá Starfsendurhæfingu Norðurlands, síðar í Ráðgjafaskólann og er nú í félagsliðanámi.

Þegar hann lagðist inn á geðdeild í fyrsta skipti áttaði Eymundur sig loks á því að engu máli skiptir hvað aðrir halda, aðeins það sem hver og einn gerir sjálfur. „Þegar ég var í félagskvíðahópi á geðdeildinni þáði ég alla leiðsögn sem var í boði. Þá gerði ég t.d. þrennt sem ég hafði ekki gert síðan ég var krakki: fór niður í bæ, fór í strætó og fór í bíó. Það var stórmál fyrir mig en það tókst,“ segir hann.

Eymundur kynntist Hugarafli í Reykjavík 2009. „Ég hafði lesið um þá hugmyndafræði að hægt væri að fá bata með valdeflingu,“ segir hann og hreifst af. Eftir að Eymundur flutti aftur til Akureyrar tók hann þátt í stofnun Grófarinnar, þangað sem koma nú um 20 manns daglega og starfið gengur afar vel, að sögn Eymundar. Þar er einmitt unnið með valdeflingu.

Geðraskanir úti á landi líka ...

Eymundur og hans fólk í Grófinni, geðverndarmiðstöð á Akureyri, hefur upp á síðkastið heimsótt alla grunnskóla bæjarins og frætt kennara og annað starfsfólk um geðraskanir. Það mun í fyrsta skipti sem starfsfólk skóla hér á landi fær slíka fræðslu. Eymundur segist hafa fengið mjög góð viðbrögð; skólafólkið skynji hve gríðarlega mikilvægt er að geta áttað sig á einkennum vanlíðunar barnanna.

Hugarafl í Reykjavík hefur lengi frætt grunnskólanema um geðraskanir og það hafa þau Eymundur einnig gert nyrðra. Hefja einmitt slíkt ferðalag enn á ný í vikunni og sækja heim alla 9. bekki bæjarins.

Eymundur segir viðbrögð kennara og annars starfsfólks skólanna sérlega gleðileg. „Fólkið er mjög ánægt að heyra sögur okkar sem höfum glímt við geðraskanir og hve mikil áhrif það hefur haft á okkar líf. Sumum finnst við kjörkuð en geðraskanir mega ekki vera launungarmál. Ég er óhræddur við að segja sögu mína ef það getur komið öðrum til góða. Þessi fræðsla auðveldar vonandi starfsmönnum skólanna að átta sig á því hvaða börn þurfa hjálp.“

Foreldrum boðin fræðsla

Seinna í vetur verður foreldrum grunnskólabarna boðin fræðsla og vonast hann til að sem flestir nýti sér tækifærið. „Við getum ekki skyldað neinn til að mæta en það er mjög mikilvægt að foreldrar komi.“

Eymundur segir Akureyrarbæ að mörgu leyti standa sig vel við í að aðstoða fólk með geðraskanir. Nefnir Lautina, sem er athvarf opið yfir daginn, Búsetudeild bæjarins sem vinni mjög þarft verk; Fjölsmiðjan, þar sem ungt fólk með geðraskanir getur unnið, sé einnig mikilvæg svo og Virk, starfsendurhæfing.

Eymundur bendir líka á mjög ánægjulegt samstarf Grófarinnar og Háskólans á Akureyri. „Nemar í iðjuþjálfun koma til okkar og eru með hópastarf. Það er mjög gott fyrir okkur og mikilvæg reynsla fyrir nemendurna sjálfa.“

Dagdeild geðdeildar Sjúrakhússins á Akureyri var hins vegar lögð niður fyrir nokkrum árum vegna niðurskurðar. „Við reynum að fylla upp í það skarð sem þá myndaðist en félögin fyrir sunnan fá meiri peninga en við. Okkur finnst við á landsbyggðinni vera svolítið út undan hjá ríkinu, sem er slæmt mál. Geðraskanir eru nefnilega líka úti á landi, þó stundum mætti halda að fólk átti sig ekki á því.“

Eymundi líst frábærlega á það sem yfirvöld heilbrigðismála stefna að, að allir unglingar á landinu verði skimaðir fyrir þunglyndi og kvíða. „Ef ég væri í 9. bekk í dag og heyrði það sem við höfum verið að segja í skólunum myndi það örugglega skipta sköpum. Það munar miklu að átta sig á því 15 ára eða 38 ára hvað amar að, eins og í mínu tilfelli; að tækifæri sé til að eignast framtíð!“

Kennurum finnst gott að heyra reynslusögur okkar sem höfum glímt …
Kennurum finnst gott að heyra reynslusögur okkar sem höfum glímt við geðraskanir, segir Eymundur Eymundsson. um heimsóknir í skóla á Akureyri. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert