Framlengja ekki farbannið

Maðurinn var úrskurðaður í fjögurra vikna farbann í lok ágúst.
Maðurinn var úrskurðaður í fjögurra vikna farbann í lok ágúst. Ljósmynd/Pressphoto
Farbann yfir hælisleitanda sem grunaður er um að hafa smitað konur af HIV verður ekki framlengt. Þetta kemur fram í svari ákærusviðs lögreglu við fyrirspurn fréttastöðu RÚV um stöðu málins.
Maðurinn var settur í gæsluvarðhald þann 23. júlí síðastliðinn en hann kvaðst ekki hafa vitað af því að hann væri smitaður. Sam­kvæmt frétt sem birt­ist í Morg­un­blaðinu þann 24. júlí sl. hafa tvær kon­ur greinst með HIV og á ann­an tug kvenna farið í grein­ingu. Maðurinn var úrskurðaður í fjögurra vikna farbann í lok ágúst.
Samkvæmt RÚV kemur ekki fram í svari lögreglunnar hvort rannsókn málsins sé lokið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert