Hætti við að lenda á Akureyri

Akureyrarflugvöllur.Flestir farþeganna voru frá Akureyri en einnig var stór hópur …
Akureyrarflugvöllur.Flestir farþeganna voru frá Akureyri en einnig var stór hópur frá Blönduósi og á Dalvík. mbl.is/Skapti

Um miðja síðustu viku hætti farþegaþota, sem var að fljúga í beinu flugi frá Riga í Lettlandi til Akureyrar, við að lenda á Akureyrarflugvelli. Þess í stað lenti vélin í Keflavík. Þetta þykir sérstakt í ljósi þess að blíðskaparveður var á Akureyri þennan dag.

Flugið var á vegum ferðaskrifstofunnar Trans Atlantic og var vélin full með um 180 farþega innanborðs. Vikudagur greinir frá þessu.

Þar segir, að flestir farþeganna hafi verið frá Akureyri en einnig hafi verið stór hópur frá Blönduósi og á Dalvík. Farþegarnir þurftu að taka rútu heim og misstu margir úr vinnu.

Egill Örn Arnarson, starfsmaður Trans Atlantic, segir í samtali við Vikudag, að ferðaskrifstofan hafi fengið þær skýringar frá flugfélaginu að flugstjórinn hefði metið það svo öryggisins vegna að betra væri að lenda í Keflavík.

Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðstofu Norðurlands, sem vinnur að því að koma á beinu áætlunarflugi til og frá Akureyri, segir atvik sem þessi slæm fyrir markaðssetningu á beinu millilandaflugi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert