Banaslys í Árnessýslu

mbl.is

Banaslys varð í dag þegar þriggja ára barn varð undir jeppa á bílastæði við sveitabæ í Biskupstungum um kl. 17:00 í dag. Lögregla, sjúkralið og undanfarahópur björgunarsveitarinnar á Flúðum voru kölluð á vettvang auk þyrlu frá Landhelgisgæslu Íslands. 

Barnið var flutt með þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík þar sem það var úrskurðað látið. Ekki er unnt að greina nánar frá tildrögum slyssins að svo stöddu. Rannsókn málsins er í höndum rannsóknardeildar Lögreglunnar á Suðurlandi, Tæknideildar lögreglu höfuðborgarsvæðisins og Rannsóknarnefndar samgönguslysa

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert