Ungi Frakkinn varð líklega úti

Ungi maðurinn hélt til Hafnar í Hornafirði fyrir rúmu ári.
Ungi maðurinn hélt til Hafnar í Hornafirði fyrir rúmu ári. Sigurður Bogi Sævarsson

Líklegast er talið að Florian Maurice Francois Cendre, nítján ára franskur ríkisborgari sem fannst látinn í Laxárdal í Nesjum, hafi orðið úti. Niðurstaða krufningar á líkamsleifum mannsins segja ekki til um dánarörsök en þó er ekki talið að honum hafi verið ráðinn bani. Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á málinu er lokið. 

Cendre kom hingað til lands í byrjun október í fyrra. Vitni gaf sig fram við rannsókn málsins og sagðist hafa verið á göngu þann dag sem vitað er að ungu maðurinn kom með flugi til Hafnar í Hornafirði frá Reykjavík. Vitnið greindi frá því að hafa séð álengdar mann með bakpoka á göngu eftir vegslóða inn Laxárdal.

Vitnið var í of mikilli fjarlægð frá manninum til að greina hver hann væri eða til að sjá nákvæmlega fatnað hans en taldi hann þó að maðurinn hefði ekki verið í útvistarfatnaði.  Rúmum mánuði síðar átti vitnið leið eftir veginum inn að Laxárdal þegar það sá bakpoka um tuttugu metrum ofan við vegslóðann rétt innan við Þverá. 

Vitnið áleit einhvern hafa lagt pokann frá sér og farið í göngu um nágrennið og setti þetta ekki í samhengi við manninn sem það sá 2. október 2014. Í ljós hefur komið að farvegur Þverár hefur breyst mikið á þeim slóðum sem vitnið sagðist hafa séð bakpokann. Hefur það hugsanlega gerst í vorleysingum. Ekkert er vitað um afdrif þessa bakpoka og ekki staðfest að hann sé frá Cendre. 

Við rannsókn málsins kom í ljós að Cendre var mjög mikill einfari og hafði nánast engin samskipti átt við fjölskyldu og vini í ein tvö ár. Mun hann hafa lokað sig inni í heimi tölvuleikja. Sagði hann ekki frá Íslandsferð sinni og eru engar vísbendingar um ástæðu hennar eða hver tilgangur hans var að fara austur á Höfn.  Líklegast er talið að Cendre hafi orðið úti skömmu eftir komu hans til Hafnar. 

Florian Maurice Francois Cendre.
Florian Maurice Francois Cendre. Ríkislögreglustjóri
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert