Lögregla með sérstakt eftirlit á Airwaves

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun halda úti sérstöku eftirliti með veitinga- og skemmtistöðum á meðan tónlistarhátíðin Iceland Airwaves stendur yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu en lögreglan vill brýna fyrir veitingamönnum að virða reglur um leyfilegan opnunartíma, en ekki má hafa opið lengur en leyfi segir til um.

Er þetta nefnt sérstaklega vegna hátíðarinnar sem hefst í kvöld með tónleikum víðs vegar í miðborginni. Hátíðin stendur dagana 4.-8. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert