Engin ákvörðun tekin um kyrrsetningu

Tveir fórust í flugslysinu í gær.
Tveir fórust í flugslysinu í gær. Þórður Arnar Þórðarson

Engin ákvörðun hefur verið tekin um það hvort aðrar nýjar Tecnma kennsluflugvélar Flugskóla Íslands verði kyrrsettar í kjölfar flugslyssins í gær. Þetta staðfestir bæði skólastjóri Flugskólans, Baldvin Birgisson og fjölmiðlafulltrúi Samgöngustofu.

„Það hefur engin ákvörðun verið tekin um það. Í þeim efnum fylgjum við tilmælum framleiðanda og rannsóknarnefndar samgönguslysa. Fyrir liggur að allri flugkennslu hjá skólanum hefur verið aflýst fram yfir helgi. Hugur okkar nú er hjá aðstandendum flugmannanna,“ segir í skriflegu svari frá Baldvini við fyrirspurn mbl.is

Í tilkynningu frá Flugskóla Íslands í dag kemur fram að ein af kennsluflugvélum Flugskóla Íslands brotlenti í gær suður af Hafnarfirði. Tveir létust í slysinu.

„Báðir hinir látnu voru reynslumiklir flugmenn og flugkennarar. Tilgangur flugsins var þjálfun annars flugkennarans á þessa tegund flugvélar.

Samkvæmt flugáætlun var áætlaður brottfarartími vélarinnar kl. 13:45. Hún fór í loftið um kl. 14 og áætlað var að lenda aftur á Reykjavíkurflugvelli upp úr kl. 14:30.

Flugmennirnir voru í samskiptum við flugumferðarstjórn í Reykjavík. Þeir byrjuðu á að taka nokkrar snertilendingar á Reykjavíkurflugvelli og fóru svo á hefðbundið æfingasvæði suður af Hafnarfirði.

Neyðarsendir fer svo í gang og þá fer flugumferðarstjórn í Reykjavík strax að reyna að ná sambandi við vélina. Þegar ekkert svar berst frá flugvélinni þá er björgunarlið kallað út.

Flugskóla Íslands var tilkynnt um óvissuástand af flugumferðarstjórn og að ekki næðist samband við flugvélina. Í kjölfar þess var viðbragðsáætlun skólans vegna flugslysa virkjuð.

Flugvélin var ein af fimm samskonar vélum sem Flugskólinn rekur. Ein þeirra hefur verið í rekstri hjá skólanum frá því í febrúar 2014, tvær voru teknar í notkun í ágúst síðastliðnum og tvær nú í nóvember. Vélin sem brotlenti var önnur þeirra. Þessi tegund flugvéla hefur verið í notkun frá árinu 2004 og eru þær í rekstri víða um heim.

Flugskólinn vinnur nú með lögreglu og Rannsóknarnefnd samgönguslysa að því að upplýsa um orsakir slyssins.

Hugur allra er hjá aðstandendum flugmannanna. Öllu skólastarfi Tækniskólans hefur verið aflýst í dag. Öll flugkennsla á vegum Flugskóla Íslands fellur auk þess niður fram yfir helgi af virðingu við hina látnu og aðstandendur þeirra.

Flugskólinn hefur kallað starfsmenn og nemendur skólans saman í samstarfi við Rauða kross Íslands síðar í dag. Þar verður þeim veittur stuðningur og upplýsingar. Enn fremur hefur skólinn boðað til opinnar samverustundar í Vídalínskirkju í Garðabæ sunnudaginn 15. nóvember kl. 17.“

 Upplýsingar um vélina

Tegund: Tecnam P2002JF
Gerð: 2 sæta
Einkennisstafir: TF-IFC
Skráningarnúmer: 1126
Árgerð: 2015
Raðnúmer: 265
Tekin í notkun: 6.11.2015
Tegund hreyfils: ROTAX 912 S2
Síðasta skoðun: Tekin inn ný í nóvember 2015
Heildarflugtími flugvélar: 16,2 tímar
Eigandi: Flugtak ehf.
Umráðandi og rekstraraðili: Flugskóli Íslands ehf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert